Sigurhátíð sæl og blíð | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sigurhátíð sæl og blíð

Fyrsta ljóðlína:Sigurhátíð sæl og blíð
bls.206-207, nr. 176
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Sigurhátíð sæl og blíð
ljómar nú og gleði gefur,
Guðs son dauðann sigrað hefur,
nú er blessuð náðartíð.
Nú er fagur dýrðardagur,
Drottins ljómar sigurhrós,
nú vor blómgast náðarhagur,
nú sér trúin eilíft ljós.
2.
Ljósið eilíft lýsir nú
dauðans nótt og dimmar grafir.
Drottins miklu náðar gjafir,
sál mín, auðmjúk þakka þú.
Fagna, Guð þér frelsi gefur
fyrir Drottin Jesú Krist
og af náð þér heitið hefur
himnaríkis dýrðarvist.
3.
Drottinn Jesús, líf og ljós
oss þín blessuð elska veitir,
öllu stríði loks þú breytir
sæluríkt á sigurhrós.
Mæðu og neyð þín miskunn sefi,
með oss stríði kraftur þinn.
Sigur þinn oss sigur gefi,
sigurhetjan, Jesús minn. Páll Jónsson