Borgarfjarðarbragur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Borgarfjarðarbragur

Fyrsta ljóðlína:Eg held vert að yrkja kvæði
bls.VI, 199–205
Viðm.ártal:≈ 1775
Flokkur:Náttúruljóð

1.
Eg held vert að yrkja kvæði
um einnar* byggðar dyggð og gæði,
greina þannig gömul fræði;
gróður jarðar þessi ber.
Fagur Borgarfjörður er.
Aldin klár og urtir bæði
inni má þar finna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

2.
Girtur fjöllum geysiháum
of grænum dölum, varla smáum.
Þaðan líða læki sjáum
landið þetta yfir hér.
Fagur Borgarfjörður er.
Upp í tinda efstu fláum
ýtar dýrin vinna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

3.
Geyma fjöllin gagnið besta,
grösin, dýr og steina mesta,
jarðarlim og farfann flesta
er fríða* liti á sér ber.
Fagur Borgarfjörður er.
Múragrjótið mætti festa
meður kalki stinna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

4.
Hlíðar prýða skógar skærir
þótt skemmi tíðum ísar glærir,
en þá sólin upp sig færir
um þær glampa-ljómann ber.
Fagur Borgarfjörður er.
Aldin dofnuð endurnærir
svo aftur kraftinn vinna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

5.
Hér næst eru hólar grænir,
hlaðnir grjóti efst að mænir,
neðar spretta viðir vænir:
víðir, reynir, hrís [og] einir.
Fagur Borgarfjörður er.
Lim með jafna lýðir kænir
lyng og blóðbjörg finna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

6.
Þá má líta þýfða móa,
þurra völlu, slétta flóa.
Í landi þessu glansa og gróa
gullnar liljur, sveppir, ber.
Fagur Borgarfjörður er.
Blómin víða glansa og glóa
með glampann laufa sinna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

7.
Engi, nes og akrar víða
ótal gæðum landið prýða.
Um bygging þessa furðu fríða
fénaðurinn dreifir sér.
Fagur Borgarfjörður er.
Út að sjó og inn til hlíða
má átján bæi finna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

8.
Alls kyns fuglar um þar sveima,
eggin þeirra hreiður geyma.
Vötn og lækir víða streyma,
veiðast í þeim fiskarner.
Fagur Borgarfjörður er.
Ótal smiða á þar heima
allt* af hagleik vinna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

9.
Af áðurgreindum foldarfjöllum
fellið Svarta eitt vér köllum.
Í þess gljúfra efstu höllum*
áttu fornmenn blóthof sér.
Fagur Borgarfjörður er.
Heyra má þar hljóm í bjöllum,
þeim hringir veðrið stinna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

10.
Í heiði vestur hellir stendur
Hamra-Settu viður kenndur,
allur grjóti utan rendur.
Annan Gellivör bygger.
Fagur Borgarfjörður er.
Í Staðarfjalli hennar hendur
hafa margt að vinna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

11.
Ýmisliður einn er þéttur,
utan mosa rauðum settur.
Álfaborg sá kallast klettur;
kennist þar við sveitin hér.
Fagur Borgarfjörður er.
Hann er innan haldinn sléttur,
hulinn bóli linna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

12.
Ofan á láðið efst úr fjöllum
einn finnst borinn steinn af tröllum,
Grettishaf á grænum völlum
geymir ketil undir sér.
Fagur Borgarfjörður er.
Hann er fylltur handarmjöllum,
hulinn bóli linna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

13.
Þó er annað þessu meira,
þúsund sinnum betra og fleira
yndi og gagn sem Ýmis dreyra
af gerir að standa hér.
Fagur Borgarfjörður er.
Æskilegt má heita að heyra
þá hömrum öldur brynna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

14.
Dauðir hvalir drífa að sandi.
Digrar eikur frá eg standi
enn, um flúðir uppvaxandi
allra handa söl-jurter.
Fagur Borgarfjörður er.
Lax og sel af landabandi
langar nætur ginna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

15.
Söngfuglar með sætum hljóðum
sífelldlega skemmta þjóðum.
Síldir hlaupa af humra slóðum
hópum saman upp á sker.
Fagur Borgarfjörður er.
Af stórfiskanna ærslum óðum
undir landið grynna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

16.
Strengjadýr frá* ströndum renna,
sterkir digra hlunna spenna
þar til, meðan kappar kenna (?)
kólgu-bruna fákarner.
Fagur Borgarfjörður er.
Um þá lúta líka nenna,
loks svo aflann finna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

17. Þorsk og spröku fyrðar fanga,
finnst þar* einnig hlýri og langa.
Keila og skata á krókum hanga,
koli, ýsa og steinbíts-hrer.
Fagur Borgarfjörður er.
Hákarl menn og hamarinn stranga,
háf og blágóm vinna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

18.
Á sælutíðum sumars blíðum
sjá menn skip með búning fríðum
heims úr öllum áttum víðum
undir hafnir leggja hér.
Fagur Borgarfjörður er.
Þeir framandi fyrðar tíðum
fréttir margar kynna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

19.
Hæstu prakt og handverks-blóma,
heimsins dýrð og allan sóma,
hér með seglin hvít sem rjóma,
hópur skeiða þessi ber.
Fagur Borgarfjörður er.
Flögg og veðurvitar ljóma
varla gulli minna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

20.
Sveitungum eg sendi þetta
Suðrafarið næsta létta.*
Hér með lán og hamingju rétta
hljótið þér sem búið hér.
Fagur Borgarfjörður er.
Bind eg Hleiðúlfs bát við kletta.
Bragurinn skal svo linna.
Sá er prýði sveita landsins hinna.

„Handrit Skúla Sveinssonar úr Mjóafirði.“


Athugagreinar

* 1.2 órrar B.
* 3.4 fagra B.
* 8.7 er allt B.
* 9.3 hjöllum B.
* 16.1 að B.
* 17.2 Leiðr. eftir B, og A.
* 20.2 nægtalétta B.
Sjá Formála Óskars Halldórssonar við I bindi þessarar útgáfu þjóðsagnanna.