Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Um hreystiverk GrettirsFyrsta ljóðlína:Hnikars könnu helli eg á
Höfundur:Hjálmar Jónsson (Bólu-Hjálmar)
Viðm.ártal:≈ 1850–1875
Skýringar
Kvæðið er skrifað upp eftir kvæðabók í eigu Kristjáns Runólfssonar á Sauðárkróki 1996, af Eysteini Sigurðssyni.
Fyrirsögn kvæðisins er: Um hreystiverk Grettirs eftir H.J.son 1. Hnikars könnu helli eg áhvítbjarganna staupa mar, Grettirs sönnu frægðum frá og fyrri man[na greini eg þar].
2. [Fö]ður sínum heima hjáhann nam vaxa ungur [þar], [ó]dæll þótti ýtum sá, yfrið stór í skapi var.
3. [U]tan Bjargi fór hann fráferðbúinn til siglingar, [g]ekk svo voða göltinn á, græðis vindur blés ósp[ar].
4. Jós við átta ýta þá,yfrið lekt því skipið var, lenti í Noreg höldum hjá, haug nam stóran brjóta þar.
5. Gjörði saxi góðu að ná,gull og silfur þaðan bar, [br]eiðum meður benja ljá berserkina deyddi snar.
6. [Þessir] voru tólf að tjá,trölldóms meður vonsku par, [við] þá einn hann átti að rjá úti um dimmu grímunnar.
7. [Híð]björn stóran hitti þá,hildar spennti blaðið snar, [hjó] svo þessu hetjan kná, hann nam dauður liggja þar.
8. [Til Í]slands halda hugði þáhelst fyrir víga sakirnar, [fræ]ndum sínum heima hjá hann á Bjargi um tíma var.
9. [Ið]kar Glámur illsku stjá,afturgenginn þessi var, [Vil]di Grettir við hann rjá, vóru það harðar sviptingar.
10. [Af]bragð drauga allra sáillsku krafti fylltist þar, [la]gði Grettir ólán á er hönum dró til fullnaðar.
11. Eftir þetta orku stjáaf hönum Grettir hausinn skar, brenndi síðan báli á, besta sigur vann hann þar.
12. Úr Goðafossi gjörði nágrimmlega stórum flögðum snar, til merkis þaðan mannsbein smá á messudaginn sama bar.
13. Heiði vatnsins Arnar áátta tíu að Grettir bar, felldi tvenna þegna þrjá, Þundar logann spennti snar.
14. Hallmund kunnu ei höldar sjá,hann að baki Grettirs var, blóðsins rauða akri á átján dauðir lágu þar.
15. Hinir þaðan héldu frá,höfðu sneypu allstaðar, Keldhverfingar þunga þrá af þessu báru um hyggju far.
16. Upp í kletta einnri gjáæði lengi dvaldist snar, Fagra[skógafjalli] á fjærri manna byggðum var.
17. [Öllum sín]um fjendum fráá ferðum þennan tíma var, [þing var háð] við Hítará og hönum að sóktu margir þar.
18. [Virðar] spenntu vopnin blá,vega hugðu Grettir þar, [með vask]ar hendur hraustur þá hann nam verjast furðu snar.
19. Marga barði þegna þáá þessum fundi er haldinn var, hinir síðan hrukku frá hræddir vegna skeinunnar.
20. Í Drangey fór hann eftir áog hans frændi mennta snar, fimmtán vetra vaskur sá vænstur sveina greinist þar.
21. Slokknaði eldur ýtum hjá,í eynni skip ei nokkurt var, en vika sjávar lands til lá, lifnuðu sorgar stundirnar.
22. Grettir hreysti hug á brá,hljóp á sundið strax þegar, örðugt synti kempan kná að kvöldi dags á Rey[kjum var].
23. Fram í eyjuna fluttur þá,frægur þaðan kappinn var, Þorbjörn illi öngull þá á hann sókti margs vegar.
24. Galdra kerling grimmleg þágjörði hönum sendingar, rekkurinn svo í rekkju lá, rétt að kominn dauða var.
25. Þegnar komu eyjuna á,átján saman voru þar, drengurinn varði dyrnar þá, dagvald sínum beitti þar.
26. Karskir rífa kofann þá,kominn að bana Grettir var, með saxi tvo hann hjó þar hjá, hné hann dauður fram þegar.
27. Af hönum saxi ætla að náátta hetjur fullröskvar, hönd af dauðum hjuggu þá svo hrukku af sterku fingurnar.
28. Illuga síðan fjörtjón fáog fengu skömm af allstaðar, útlegðar sá átti stjá er illsku verkum fyrir var.
29. Grettirs bróðir Þorsteinn þáþað nam frétta hreysti snar, vopna þingi einu á Öngul klauf í herðarnar.
30. Í Miklagarði höldum hjáhefnd sú eina framkvæmd var. Grettirs sönnu frægðum frá flutti eg stökur ógildar.
31. Hreysti maður mesti sámun hafa verið Ísfoldar. Horna lög af Hvítings lá hef eg sopið lagvirkar. ENDI |