Lof letinnar | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Lof letinnar

Fyrsta ljóðlína:Leti er landsins sæla
bls.256-257
Viðm.ártal:≈ 1750
Leti er landsins sæla,
lög sér kann að mæla,
hvað sem þenkja og þvæla
þeir sig við henni skæla;
merkilega mök framgár,
myr ei tal né hæla,
eins og fíllinn stöðugt stár,
stilli gjörn að kræla;
hvergi brýtur hnakka sinn,
handa geymir varygðin,
barmurinn og bakhlutinn
best í kerru pæla;
heldur sig við hjúkólfinn,
höfðingjanna svæfilinn,
málfrækinn um matlaunin
magann vill ei tæla;
hvar sem hverir þræla
hún má rósir bæla
og sér dæla
nyt næla
sorgar eigi
munn þó megi
móthjalendur stæla;
voldug vörn harmkvæla,
væri hún djöflafæla.