Þrettándaskothríð | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Þrettándaskothríð

Fyrsta ljóðlína:Þrettándaskothríð
bls.10. árg. bls. 168
Bragarháttur:Óháttbundið ljóð
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:2009

Skýringar

Reykjavík að kvöldi 6. janúar 2009.
Þrettándaskothríð
í úrhellisrigningu
við lyftum glösum og skálum
fyrir hækkandi sól
blossagangur á himnum
og háværar sprengingar
utan við gluggann
í morgun
var barnaskóli á Gazaströnd
jafnaður við jörðu