Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Vorvísur I | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Vorvísur I

Fyrsta ljóðlína:Fögur þykir mér foldin ísa
Höfundur:Páll Ólafsson
bls.59–60
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) ferkvætt AbAbcc
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:1852
Flokkur:Náttúruljóð

Skýringar

Undir titli stendur: „Kveðnar í Breiðdal 1852“
1.
Fögur þykir mér foldin Ísa
feldinn vorgræna komin í.
Jöklarnir hátt við himin rísa,
hvítir og kaldir æ og sí.
Eyglóar skýin endurslá
eldrauðum lit á vötnin blá.
2.
Nú er svo margt sem yndið eykur
auganu bæði fjær og nær.
Eitt stráið sér við annað leikur
því andar mjúkur vestanblær.
Fuglarnir hefja sætan söng
um sumarkvöldin björt og löng.
3.
Mennirnir einir sinna svefni,
syfjaðir náðir taka skjótt,
en fuglarnir hafa yrkisefni
unaðarríkt um bjarta nótt
því hljóma þeirra um flöt og fjöll
fagnaðarkvæðin löng og snjöll.
4.
Nú get ég ei sem fuglinn fagur
flutt þér kvæði sem verðugt er
en þegar minn endar ævidagur
eilífa lofgjörð skal ég þér
lifandi manna landi á,
ljósanna faðir, syngja þá.