Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
ÍslandFyrsta ljóðlína:Ísland farsælda frón
Höfundur:Jónas Hallgrímsson
Heimild:Jónas Hallgrímsson Ljóðmæli. Viðm.ártal:≈ 1850
Flokkur:Ættjarðarkvæði
Ísland! farsældafrón
og hagsælda hrímhvíta móðir! Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best? Allt er í heiminum hverfult og stund þíns fegursta frama lýsir sem leiftur um nótt langt fram á horfinni öld. Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart. Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu austan um hyldýpishaf, hingað í sælunnar reit. Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti; ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt. Hátt á eldhrauni upp, þar sem ennþá Öxará rennur ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð. Þar stóð hann Þorgeir á þingi er við trúnni var tekið af lýði. Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll. Þá riðu hetjur um héruð og skrautbúin skip fyrir landi flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim. Það er svo bágt að standa’ í stað, og mönnunum munar annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið. Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur? Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg? Landið er fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið er skínandi bjart. En á eldhrauni upp, þar sem ennþá Öxará rennur ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut. Nú er hún Snorrabúð stekkur og lyngið á lögbergi helga blánar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik. Ó, þér unglingafjöld og Íslands fullorðnu synir! Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá! |