Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1865
Skýringar
Prentað í fyrsta sinn í Snót, Akureyri 1877, bls. 201–202. Þessi færsla hefur ekki verið samlesin við þá frumprentun.
1. Hjá Goðmundi’ á Glæsivöllumgleði býr í höll. Glymja hlátra sköll, og trúðar og leikarar leika þar um völl, en lítt er að setningi slegið.
2. Áfengt er mungátið,mjöðurinn er forn, mögnuð drykkjarhorn, en óminnishegri og illra hóta norn Undir niðri’ í stiklunum þruma.
3. Á Grím’ einum góðaaf gulli höfuð skín, gamalt ber hann vín. en horns yfir öldunum eiturormur gín, og enginn þolir drykkinn, nema jötnar.
4. Goðmundur kóngurer kurteis og hýr, yfir köldu býr. Fránar eru sjónir, en fölur er hans hlýr, og feiknstafir svigna í brosi.
5. Á Glæsivöllum aldreimeð ítum er fátt allt er kátt og dátt; en bróðernið er flátt mjög og gamanið er grátt, í góðsemi vegur þar hver annan.
6. Horn skella á nösumog hnútur fljúga um borð, hógvær fylgja orð; en þegar brotna hausar og blóðið litar storð, brosir þá Goðmundur kóngur.
7. Náköld er Hemra,því Niflheimi frá nöpur sprettur á; en kaldara und rifjum er konungsmönnum hjá, halinn á hjarta þaðan slapp ég. Athugagreinar
Lesbrigði m.v. aðrar útgáfur sem lesa þarf saman við ljóðasafn Gríms frá 1880 „loddarar“ í stað „leikarar“ (1. erindi).
|