Söngur Sigrúnar | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Söngur Sigrúnar

Fyrsta ljóðlína:Nú ljúfa þökk fyrir allt og eitt
bls.114–115
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Nú ljúfa þökk fyrir allt og eitt
sem áður lékum í bernsku-haga,
eg bjóst við leikurinn gengi greitt
til gamalaldursins daga.
2.
Eg bjóst við leikinn þann bæri úr stað
frá birkirjóðrum þar sól skein endur,
að Sunnuhvoli og svo þar að
er sóknarkirkja vor stendur.
3.
Á kvöldin sat eg oft seint og beið
og sá á Grenihlíð vonar-fegin,
en fjallið skyggði um foldar leið
svo fundið gastu ekki veginn.
4.
Eg sat og hafði oft þá hugarró,
þú hiklaust kæmir á liðnum degi.
Og ljósið brann uns það dautt út dó;
það dimmdi, en þú komst samt eigi.
5.
Mín veslings augun þar vöndust að,
þeim verður tregt þaðan burt að renna;
þau þekkja ekki neinn annan stað
og angri þrútin þau brenna.
6.
Til Fögruhlíðar mig hvetjið þið,
að harma-fró eg í kirkju hljóti.
En síst eg þangað mun sækja frið; –
þar situr hann beint á móti.
7.
Nú, vel er þó, að eg veit hver réð
að voru bæirnir gegnt á láði
og sjón í skóginum leið fékk léð
að leita að vild sinni og ráði.
8.
Nú, vel er þó, að eg veit hver réð
að voru stólar að grátum settir
svo leiðast kunni þau kærleik með
í kórinn beint innar eftir.