Ég leita þín | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ég leita þín

Fyrsta ljóðlína:Ég leita þín, þú leitar annars manns
bls.133–134
Viðm.ártal:≈ 1950
Tímasetning:1942

Skýringar

Birtist í ljóðabókinni Ferð án fyrirheits, 1942.
1.
Ég leita þín, þú leitar annars manns,
og loksins týnist okkar beggja þrá
í órafjarlægð út í dægrin grá
og eygir hvergi veg til sama lands.
2.
Ó, þú og ég, sem höfum aldrei hist,
mitt hjarta er þreytt á því sem var og er.
Ég, sem þú ekki þráðir, hlotnast þér,
þig, sem ég gat ei fengið, hef ég misst.