Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
FylgdFyrsta ljóðlína:Komdu, litli ljúfur
Höfundur:Guðmundur Böðvarsson*
bls.99–100
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Ættjarðarkvæði
1. Komdu, litli ljúfur,labbi, pabba stúfur, látum draumsins dúfur dvelja inni um sinn. – heiður er himinninn. Blærinn faðmar bæinn, býður út í daginn. Komdu, kalli minn.
2. Göngum upp með ánniinn hjá mosaflánni, fram með gljúfragjánni gegnum móans lyng, – heyrirðu hvað ég syng – líkt og lambamóðir leiti á fornar slóðir innst í hlíðarhring.
3. Héðan sérðu hafiðhvítum ljóma vafið, það á geymt og grafið gull og perluskel, ef þú veiðir vel. En frammi á fjöllum háum fjarri sævi bláum sefur gamalt sel.
4. Glitrar grund og vangur,glóir sund og drangur. Litli ferðalangur láttu vakna nú þína tryggð og trú. – Lind í lautu streymir, lyng á heiði dreymir, – þetta land átt þú.
5. Hér bjó afi og ammaeins og pabbi og mamma. Eina ævi og skamma eignast hver um sig. – stundum þröngan stig. En þú átt að muna alla tilveruna, að þetta land á þig.
6. Ef að illar vættirinn um myrkragættir bjóða svikasættir svo sem löngum ber við í heimi hér, þá er ei þörf að velja: þú mátt aldrei selja það úr hendi þér.
7. Göngum langar leiðir,landið faðminn breiðir. Allar götur greiðir gamla landið mitt, sýnir hjarta sitt. Mundu, mömmu ljúfur, mundu, pabba stúfur, að þetta er landið þitt. |