Eftir slysið á MB. Brødrene | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Eftir slysið á MB. Brødrene

Fyrsta ljóðlína:Ég tamdi mér snemma að hugsa hátt
bls.102
Viðm.ártal:≈ 1925
Tímasetning:1913
Ég tamdi mér snemma að hugsa hátt,
hugtak mitt var – að sigra;
ég þekkti og hataði Mammons-mátt
og mannverur þær sem breyttu flátt,
belgi dólgslega’ og digra.

Mér hraut ekki’ af hærri borðum brauð
og bað ei um náðarmola,
en kynntist mörgum sem áttu auð,
þau öreiga sálarhylki snauð,
þungbærast var að þola.

Mig bilar aldrei mín barnatrú,
það búi’ í mér drottins kraftur,
þó líði mér einna lakast nú,
mín löngun og von er – örugg sú;
ég styrkist til starfsins aftur.