Jónsvísur (brot) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Jónsvísur (brot)

Fyrsta ljóðlína:Angrfellir varst öllum
Höfundur:Kolbeinn Tumason
Bragarháttur:Dróttkvætt
Viðm.ártal:≈ 1200
Flokkur:Helgikvæði
1.
Angrfellir varst öllum
einn postulum hreinni
heilags Krists í hæstu
happskeytr föruneyti.
Unni engum manni
jafnheitt friðar veitir
þýðr sem þér og móður,
það er minnilegt, sinni.
2.
Miðr gekkt einn en aðrir
öðlings frá píningu
svik-bannandi sunnu
snjallr, postular allir.
Þvíat drengr í styr ströngum
stótt þú hjá kvöl dróttins
blíð og bragnings móðir
byrstrandar grátandi.
3.
Sjálfr kallaði sællar
sólknarrar þig harri
son Maríe, særir
sundhyrs í kvöl bundinn.
Ráð fann ræsir lýða
risnu kenndr á hendi
díks, áðr dauða tæki
dagrennir þér hennar.
4.
Kænn, lést þú hag hennar
höfðingi, drottningar,
hafs meðan hyrþöll lifði,
hugat blíðlega síðan.
Þér var hún, sem hárar
hildingr skipa vildi
ykkr lofar éla þekju
öll þjóð, í stað móður.
Nær enda síns verks setur Kolbeinn
þessa vísu af guðlegum veislum og verðleikum
sæls Jóhannis; hann segir svo:
Frami gengr hátt, sás himna
her-teitir þér veitir,
snardeilandi sólar,
sunds, á margar lundir.
Hár er á hvern veg meiri
hyrbjóðr, en kyn þjóðar,
alda garðs með orðum
yðra dýrð geti skýrða.