Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Niðurlag á sendibréfiFyrsta ljóðlína:Þegar ég veit að þú vakir
Höfundur:Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka
bls.25-26
Viðm.ártal:≈ 1915–0
1. Þegar ég veit að þú vakir,vina mín kæra, ljúft er mér löngum að minnast liðinna stunda. 2. Oft fyrir sjónum mér svífa,sólbjartir dagar og ljóðin er hélst þú í höndum er hjörtu okkar mættust. 3. Man ég er barmur þinn bærðist,við brjóst mitt þú hvíldir og höndum um háls mér þú vafðir, hjartkæra vina. 4. Man ég þig meðan ég lifi,ég minnist þess löngum hjá mér þá vina mín vaktir á vorbjörtum kvöldum. 5. Guði ég þakka sem gaf mérgjöfina bestu. Ég bið hann að styðja og styrkja stúlkuna mína. 6. Ég kveð þig með kærleik og blíðuog kossa þér sendi. Það mælir af alhug og ástúð þinn elskandi vinur. 7. Mig dreymir um ástir og unaðeldheitra kossa, fagrar og fjölbreyttar hallir framtíðarvona. |