Nokkrar vísur séra Eiríki Ketilssyni tileinkaðar | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Nokkrar vísur séra Eiríki Ketilssyni tileinkaðar

Fyrsta ljóðlína:Af huga hreinum kveðjan klár
bls.1–2
Bragarháttur:Ferskeytt – víxlhent (frumhendingalag)
Viðm.ártal:≈ 1650
Flokkur:Ljóðabréf

Skýringar

Handrit: AM 439 12mo, bls. 3–5.
1.
Af huga hreinum kveðjan klár
komi þér til handa,
firrtur meinum öll þín ár
æ sért brjótur randa.
2.
Ávallt gæddur sóma sért,
sigri prýddur hrönnum,
auðnu klæddur ætíð vert,
auði skrýddur sönnum.
3.
Þér fylgi sigur seima grér
sæmd og tryggðum bundinn,
skaðvænligur, þegn frá þér,
því sé voðinn hrundinn.
4.
Eg hefi safnað, geira grér,
gulnefs fjaðra sáði
og eigi hafnað, er þú sér,
hans eftra sögðu gráði.
5.
Samt skal þetta bjóða bag
björtum stála runni,
utan pretta seinlegt sag
samið náms af brunni.
6.
Minn er óður ekki skýr
eða góður fundinn,
þeygi fróður, raunar rýr,
reiknast móður, bundinn.
7.
Þetta skakkast letrið ljótt
loðinn klessir penni,
samt það blakkast blaðið mjótt
burt þín höndin spenni.
8.
Friður gefist góður þér,
gjaldist dyggða sáðir,
niður sefist hróður hér,
haldist tryggða dáðir.


Athugagreinar

Finis. S. O.