Eitt dæmi um það hversu lukkan misfellur mannkindunum | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Eitt dæmi um það hversu lukkan misfellur mannkindunum

Fyrsta ljóðlína:Nú má heyra þjóðstig þann
bls.239
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) fer,- þrí- og tvíkvætt aaaBccB
Viðm.ártal:≈ 1600
Tímasetning:1612
Flokkur:Heimsádeilur

Skýringar

Fyrsta erindið er myndað af 1., 2., 3., og 7., línu háttarins og þarf ekki að greinast sérstaklega í háttaskrá.
1.
Nú má heyra þjóðstig þann,
það var fyrst eg minnast kann,
í eymdum lifði margur mann.
Og mál er að linni.
2.
Sumir áttu góss og gull,
gildan auð og húsin full,
aðrir fundu frost og sull
og fengu hvörgi inni.
Undu sér við eymd og sút,
ævin þeirra gekk svo út.
Og mál er að linni.
3.
Sumir báru sverð á hlið
og sveinstéttina kepptust við,
en aðrir öngvan fengu frið
og földu sig þar inni.
Síðan datt á dyrnar spjót
með dáruskap og hofmanns hót.
Og mál er að linni.
4.
Sumir tóku annars arf
undir sig þá nökkur hvarf,
en aðrir héldu ei hálfum skarf
af heillri eigu sinni.
Liðu sút og sorgir menn,
að síðustunni húsganginn.
Og mál er að linni.
5.
Sumir höfðu svo margt bú
að setja varð í eyði þrjú,
en annar hvörki hund né kú
hafði á ævi sinni,
kot fékk enginn félaus mann,
fór svo upp á almúgann.
Og mál er að linni.
6.
Sumir unnu sér til fjár
að setjast undir stéttir þrjár,
en aðrir hröktust átján ár
í allri góðvild sinni.
Þeirra orð og þarfleg ráð
þótti ríkum mesta háð.
Og mál er að linni.
7.
Sumir báru silki og skrúð
sópuðu allt úr kaupmanns búð,
en aðrir gengu á hákarls húð
og héldu á beining sinni.
Eldurinn undan hófum hraut
þá hofmanns fólkið reið á braut.
Og mál er að linni.
8.
Sumir höfðu soddan þrótt,
þeir sátu og drukku fram á nótt,
en aðrir lágu í sæng með sótt,
sá var háskinn minni.
Hvar sem nökkur datt eður dó
dárinn margur að því hló.
Og mál er að linni.
9.
Sumir prestar hófust hér
á hofgarðana ólærðir,
en aðrir létu líka sér
að liggja á gæruskinni.
Svo var brotið bræðralag,
bevísast það enn í dag.
Og mál er að linni.
10.
Sumir höfðu sessur og stól,
silfur og gull sem liti á sól,
en aðrir fengu öskuból,
þó öllu meira vinni.
Litlu kostuð klæði fá,
kann þar enginn falla upp á.
Og mál er að linni.
11.
Sumir gátu ekki átt
afkvæmið svo lifði nátt,
aðrir færðu fólkið smátt
fram á handbjörg sinni.
Ríkiskvenna kisturnar
komu þeim ekki að gagni par.
Og mál er að linni.