Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Æskuleikir skáldsinsFyrsta ljóðlína:Áður en beygði elli
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.438
Viðm.ártal:≈ 1650
Skýringar
Stafsetning færð til nútímahorfs.
Áður en beygði elli
engan leik ég sparði, mörg var menntin kring: að rífa ræfil úr svelli reka naut frá garði, reisa horgemling. Standa á höfði, steypa klukku um vetur, stilla leggi, járna rimbutetur, fara í strokk og stafa kúrvelskt letur, stömpum velti eg hverjum manni betur. Kunni eg kjöl á fara, kerlinguna líka, á ristum gekk um rann. Kænlega knetti snara, koss fékk hjá mér píka, saltið vega vann; fara í skíðum fljótt ég gerði læra, fleyta skipi þótt[i] nokkur æra, fimur á sundi [...] af fimleikunum vil ég mig ei stæra. Kotru kunni eg forðum, kopríálinn líka, dánumann tefldi eg títt. Það skipti engum orðum, eins fátæka og ríka lék ég stundum líkt; færu tafl og forkæring að skoða, flestum vill það helst í minni loða, ofanfelling, Ólafs tafl og goða, að elta stelpu kalla eg lítinn voða. |