Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Ljóð ort til Hjálmars Þorgilssonar frá Kambi í DeildardalFyrsta ljóðlína:Mannstu ekki óskavorið
Höfundur:Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum*
Viðm.ártal:≈ 0
1. Manstu ekki óskavorið,eldana sem heitast brenna, fram er gekkstu fyrsta sporið, flestir muna daga tvenna. Hreystin þín um æviárin aldrei brást í þyngstu raunum. Þó gránuð séu höfuðhárin hlaustu smátt af frægðarlaunum. 2. Fram á hafið ferðir margarfórstu þó að tvísýnt væri, faldir ekki afl til bjargar, engu slepptir tækifæri. Drangeyjar við köldu kletta hvergi varstu í sóknum ragur. Þó að ýfðist aldan gretta endaði vel sá rammislagur. 3. Sunnan undir Eynni stenduraldagamall klettadrangi, öldusogum utan renndur Ægi „Kerling“ sver í fangi. Ögraði djörfum yngissveinum, enginn þorði hana að klífa því höldar vildu heilum beinum haldið fá og mega lifa. 4. Þessa að sigra þorði enginnþráin heit þó gjörði hvetja en sextán ára daladrenginn dugði smátt í sókn að letja. Lengi hreysti hans mun lifa, hjartað bar ei kvíða fargið, í einu kasti upp réð klífa áttatíu metra bjargið. 5. Hver hefir jafnt til ásta unniðaf okkur móður-jarðar sonum? Hver hefir skarpar skeiðhlaup runnið og skákað betur fögrum konum? Yngri mönnum örðugt gengur, yfirfylltum tískudrambi. Nú er fáum lánuð lengur listin Hjálmars gamla á Kambi. 6. Glímutök við gömlu Elligarpur þessi fær að reyna; ennþá hefur haldið velli, hræðist aldrei sveiflu neina. Úrslitunum eftir dokum, enn er hreysti föst í skorðum, konuna sigra kann að lokum sem Kerlingu við Drangey forðum.* 7. Njóttu heiðurs heill í elli,hugumstóri sómadrengur. Sigurhetja haltu velli, hraustleikans ei bresti strengur. Lán og gleði líf þitt krýni, lofi störf þín menn og konur. Á þig sólin skæra skíni Skagafjarðar mæti sonur. |