Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Krían komin | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (1291)
Afmæliskvæði  (11)
Ástarljóð  (10)
barnagælur  (1)
Biblíuljóð  (3)
Eftirmæli  (13)
Ferðavísur  (3)
Gamankvæði  (18)
Háðkvæði  (8)
Heilræði  (1)
Hestavísur  (2)
Hindisvík  (2)
Húnaþing  (8)
Húnvetningar  (7)
Jóðmæli  (1)
Jólaljóð  (3)
Kappakvæði  (1)
Lífsspeki  (2)
Ljóðabréf  (6)
Náttúruljóð  (48)
Oddi  (1)
Rímur  (1)
Sagnakvæði  (1)
Sálmar  (2)
Sálmur  (2)
Skáldsþankar  (44)
Strandir  (2)
Söguljóð  (11)
Söngvamál  (1)
Tíðavísur  (1)
Tregaljóð  (4)
Þululjóð  (1)
Ævikvæði  (2)

Krían komin

Fyrsta ljóðlína:Á krossmessunni kemur þú
Heimild:Stillur.
bls.8
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Á krossmessunni kemur þú
krían smá, sem vistað hjú
og velkomin með vargaskapinn allan.
Þá er úti um þögn og frið
þitt mun fas og stórlyndið
líkt og fyrr - og lemdu oss bara á skallann.
2.
Þér mun hugsast hitt og það
hér á landi að finna að
allan daginn ertu aða vésa og rífast.
Friðarhjal þér lætur lítt
litla skassið hvítt og frítt
og vertu að, við engu þarf að hlífast.
3.
En seg mér, ertu söm í lund
á Suðurálfu röðulgrund
eða styggist hér á norðurhjara?
Æ, þrátt fyrir allan ágreining
ertu í landi mesta þing
yndi Fróns og vorsins dýrmæt vara.