Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Vor | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (1291)
Afmæliskvæði  (11)
Ástarljóð  (10)
barnagælur  (1)
Biblíuljóð  (3)
Eftirmæli  (13)
Ferðavísur  (3)
Gamankvæði  (18)
Háðkvæði  (8)
Heilræði  (1)
Hestavísur  (2)
Hindisvík  (2)
Húnaþing  (8)
Húnvetningar  (7)
Jóðmæli  (1)
Jólaljóð  (3)
Kappakvæði  (1)
Lífsspeki  (2)
Ljóðabréf  (6)
Náttúruljóð  (48)
Oddi  (1)
Rímur  (1)
Sagnakvæði  (1)
Sálmar  (2)
Sálmur  (2)
Skáldsþankar  (44)
Strandir  (2)
Söguljóð  (11)
Söngvamál  (1)
Tíðavísur  (1)
Tregaljóð  (4)
Þululjóð  (1)
Ævikvæði  (2)

Vor

Fyrsta ljóðlína:Lifna grös um laut og hól
bls.1966 bls. 52
Viðm.ártal:≈ 0
Lifna grös um laut og hól
leysir klaka úr spori
nú er allt, sem fönnin fól
faðmað sól og vori.

Vor í lofti, grundin grær
geislar mildir skína
hafgolan og heiðablær
hefja leiki sína.

Ég mun hverja ferð til fjalls
fara hress í bragði
þó mig vanti allt til alls
eins og karlinn sagði.

Fagra hlíð með grasagnótt
grafin skírum línum
ég hef marga unaðsnótt
átt í faðmi þínum.