Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Ljóðabréf 1815 kveðið af G. KetilssyniFyrsta ljóðlína:Fátt er nú í fréttunum
Viðm.ártal:≈ 0
1. Fátt er nú í fréttunum frændi síðan við skildum. Dimmt mér þótti á dögunum að dóla úteftir götunum. 2. Varð ég til á veginum í Vatnahverfismýrunum. Böðlaðist þó með bössunum í bólið mitt að lokunum. 3. Nú er ég með naumindum nýkominn úr vellinum berja farinn bægslunum í brekkunni hjá skipunum. 4. Stálið vefst í stráunum að standa á vítisbökkunum ræ ég því á rassinum með rauð augun í tóftunum. 5. Að róla eftir rollunum rýrð þykir í slættinum því Imba strauk með ósköpum andans til í hríðunum. 6. Bústýran á Bakkanum býsna köld í svörunum er að ausa eggjunum aftur og fram í kofanum. 7. Telst það eitt með tíðindum að töglin hverfa úr hestunum en maðurinn þar á Mýrunum mjög er kænn í sökunum. 8. Ósjúkt spyrja allt er um ytra hér á kjálkanum þó hitinn sé í heyjunum þeir hafa traust á vetrinum. 9. Hætti að flagga flíkunum flæðarhind í kaupstaðnum losnaði burt af líftógum og lúðraði upp að klöppunum. 10. Af borðagammi bráðfeigum brimið fleygði magálnum upp á land með ólögum en Ægir tók við görnunum. 11. Dag þann sama digta ég um: Duggan hérna á Bakkanum leysti sig frá landtógum og lóðsaði burt af höfnunum. 12. Eitt er það í annálum að hún fórst í drápsbylnum skemmdist hvergi á skervöllum þó skipið gengi af botninum. 13. Aftur vík ég orðunum enn til þín á miðanum læt ég vaða af leiðindum ljóða flest í klausunum. 14. Vertu frændi var um þig von er eftir slysunum heima áttu á Höggstöðum hætt við vígabrandinum. 15. Ég vil æ og jafnan um já, á meðan við lifum unna þér af einlægum innstu hjartapörtunum. 16. Þó fari allt að forgörðum Og fyrnist tryggð í heiminum hafðu samt í huganum heimskingjann á Bakkanum. 17. Þó askan verði að olíum eitrið sjálft að kræsingum tárin falli af tinnunum og taðan spretti á jöklunum. Athugagreinar
Heimild: Skjalasafn Amtsbókasafnsins á Ak. G 19 - úr fórum Guðmundar Jónatanssonar Litlahamri
|