Sveitarríma um Flateyjarhrepp | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sveitarríma um Flateyjarhrepp

Fyrsta ljóðlína:Á firði Breiða beðinn var
bls.bls. 71
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Á firði Breiða beðinn var
brag til reiða ef kynni
þar til beyðist þulinsfar
þagnar leiða úr inni.
2.
Sagt er frá því síst um of
þó sakir smáar valdi
græða fáir lýða lof
ljósi á sem haldi.
3.
Ei til heiðurs er það mér
á orma neyðar tíma
þó sverðameiði svinnum hér
sveitar greiðist ríma.
4.
Brag að hneigist býst við þá
betra er þegja en masa
bændum segja og brúðum frá
er búa á eyjaklasa.


Athugagreinar

Ort í Svefneyjum veturinn 1913 (Hringhenda)