Í Landeyjum | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Í Landeyjum

Fyrsta ljóðlína:Mér líður svo unaðslega
Heimild:Sandfok.
bls.bls. 32
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Mér líður svo unaðslega
í leikandi svala blænum.
Það velta svo allavega
votar bárur á sænum
og sandurinn úðann eimir
og Eyjarnar töfraðar dreymir
og „Gljáin er horfin af glænum.
2.
Og vangana sólin vermir
og varir á blautum öldum
og hafið það eftir hermir
og hendir af báruföldum
blikandi, bjarmandi glömpum
sem brimill sletti af kömpum
að sandinum kominn á kvöldum.