Pálmi Hannesson, rektor, fimmtugur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Pálmi Hannesson, rektor, fimmtugur

Fyrsta ljóðlína:Eftir hálfrar aldar stjá
Viðm.ártal:≈ 0

1.
Eftir hálfrar aldar stjá
- ekki sent í boðið -
skráði ég þér skeyti á
skjótta merarroðið.
2.
Bæði hnakk og beislisstöng
beitti ég til að rita:
Heillaóskaljóðin löng
lauguð upp úr svita.
3.
Geri þér í huga hlýtt
hryssan fullu tamin.
Aldarhelming upp á nýtt
eigi þig gæfan, framinn.
(Síðbúið skeyti, skyldi fylgja tamningarhrossi.)