Fyrirgefið mér! | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Fyrirgefið mér!

Fyrsta ljóðlína:Fyrirgefið mér, fjöll mín góð
Heimild:Sandfok.
bls.bls. 109
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Fyrirgefið mér, fjöll mín góð
fjöllin köldu og gráu
hve mín öræfaleiða ljóð
lita ykkur með bláu.
2.
Þeirra vegna sem búa í bæ
breiðum sveitum og sléttum
vef ég fjarlægðar bláa blæ
brekkur allar með klettum.
3.
Fjalli koma þeir aldrei að.
Aðeins bláu þeir trúa
miða allt við sitt heimahlað
horfa augum, sem ljúga.