Eftir renninginn | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Eftir renninginn

Fyrsta ljóðlína:Sem hvítur pappír þakti ysja ís
Heimild:Sandfok.
bls.bls. 31
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Sem hvítur pappír þakti ysja ís
svo undur hrein
og faldi börð og lautir, huldi hrís
og hrjúfan stein.
2.
En stormar grófu rúnir á það allt
svo ysjublað
hlaut ferðakvæði á sig illskukalt
sem ofsinn kvað.