Þegar vorar | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Þegar vorar

Fyrsta ljóðlína:Þótt nú sé vetur, mun vora aftur
bls.V. 1971 bls. 46
Viðm.ártal:≈ 0
Þótt nú sé vetur, mun vora aftur
allt vaknar til lífsins á ný
það leysir burt snjóinn, lóan kemur
og lofsyngur dýrðin við ský.
Þá rauðmálar sólin haf og hauður,
er hamingjusöm yfir því.
Og við förum út, sem vitum það bœði
að vornóttin er svo hlý.
Við leiðumst út með sœnum saman
í sólroðans aftanglóð.
Þar breiðum við okkar yfirhafnir
á hina döggvotu slóð.
Að brjósti sér okkur viðkvæm vefur
vornóttin yndisleg
þá skeður, þú veizt, sem við ekki segjum
vina mín - þú og ég.