Jón M. Bjarnason frá Skarði | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Jón M. Bjarnason frá Skarði

Fyrsta ljóðlína:Þú fœddist á Ströndum við fátœkleg kjör
bls.II 1967 bls. 17
Viðm.ártal:≈ 0

Skýringar

JMB er fæddur 1907
1.
Þú fœddist á Ströndum við fátœkleg kjör
og festir þar jarðlífsins rœtur.
Minningar þaðan þér fylgdu á för
til feigðar síðustu nœtur.
Þú áttir svo mikið af eldmóði þeim
er andanum lyftir til hœða.
Þá bjartsýni hjartans er bætir vorn heim
þau bros sem að verma og grœða.
2.
Þú áttir þá trú sem að flutt getur fjöll
og framsœkni og djörfung í starfi.
Vorhugur bjartur og verkin þín öll
þau verði að framtíðar arfi.
Alltaf þeim fátæka lagðir þú lið
með líknsemi og framkvæmd í verki.
Þú þekktir ei hálfvelgju, hik eða bið
og hreinskilinn barstu þitt merki.
3.
Félagsmál voru þér borin í blóð
sú barátta var þér til sóma
í röðinni fremstu þar frjálshuga stóð
fullhugi í œskunnar blóma.
Og heima í sveitinni sjáum við nú
þá sígildu ávexti skína,
er ungmennin byggðu á bjargi og trú
björtustu vonina sína.
4.
Það ljós sem að alheimi lífsneista gaf
þér lýsir í himnanna veldi.
Við sendum þér kveðju yfir þagnarmyrkt haf
og þakkir, að síðasta kveldi.
Við gleymum þér ekki þó genginn sért nú
til guðs þíns í bjartari heima.
Við söknum í hljóði að horfinn ert þú
í hjarta skal minningu geyma.



Athugagreinar

https://timarit.is/files/50680560#search=%22og%20og%22