Ferðin | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ferðin

Fyrsta ljóðlína:Ég þrammaði af stað, þegar ég fœddist
bls.I - 1967 bls. 41
Viðm.ártal:≈ 0
Ég þrammaði af stað, þegar ég fœddist
og það var í maí um vorið.
Og það er þó nokkuð síðan,
og það er margt sporið
bœði upp og ofan
ótal krákustíga.
Og svo fer á seinni hlutann
að síga.
En hvort leiðin endar
úti í mýri eða móum
ég máske fæ aldrei að vita,
en til að halda á mér hita
ég held bara áfram
unz yfir lýkur
og fölið í sporin fýkur.
— En lœrt hef ég þó
að það er að vera ríkur
— að eiga skó.


Athugagreinar

Undir ljóðinu eru stafirnir J.G.