Á jólunum 1915 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Á jólunum 1915

Fyrsta ljóðlína:Um jörðina blóðaldan hrynur heit
Höfundur:Einar H. Kvaran
Heimild:Jólaljóð.
bls.60
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1915
1.
Um jörðina blóðaldan hrynur heit.
Hver heyrir nú boðskap úr englanna sveit
orð frelsarans fæðingarnætur?
Nú hatrið fer gandreið frá manni til manns
og mannanna börn stíga trölladans
við myrkraforingjans fætur.
En konungur kristninnar grætur.
2.
Kom, lausnari mannanna, líkn oss bú
það er líkt og vér heyrum vængjasúg
frá hræfuglum haturs-landa.
Kom! Þó að vér aðhyllumst þrjósku og tál
þá þráir þig, Kristur, hver einasta sál
frá sólskini suðrænna landa
til næðinga nyrstu stranda.
3.
Kom, jólabarn alheimsins, algæsku lind
og aumka þú mannanna hróplegu synd
er náðþurfa´ í neyð sinni standa.
Kom drottinn vor Kristur, með dýrð og með vald
og drag burt hið þéttofna villunnar tjald
með hersveitum himneskra landa
og heilögum friðarins anda.