Þokan | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Þokan

Fyrsta ljóðlína:Sál vorri ofþröng orðin jarðarstofan
bls.63
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Sál vorri ofþröng orðin jarðarstofan
ofþröngt um hjartað, brjóstið sárt af mæði
óyndisstundir eins og hyldjúpt flæði
önd vorri fela sérhvern geisla að ofan.
2.
Óyndisstundir eins og hyldjúpt flæði
önd vorri fela, vonin berst og titrar
í dimmum bylgjum óttans elfur sytrar
- undarlegt sog frá dauðans myrka græði.