Þokumyndir I | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Þokumyndir I

Fyrsta ljóðlína:Mosinn sem forðum óx við Álfastein
bls.34
Viðm.ártal:≈ 0
Mosinn sem forðum óx við Álfastein
er orðinn grugg á botni í Dýjalind.
Horfinn til fulls? Að engu verður ei
með ári hverju sýnir nýja mynd
mosinn sem forðum óx við Álfastein.