Á ferð til Breiðafjarðar vorið 1922 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Á ferð til Breiðafjarðar vorið 1922

Fyrsta ljóðlína:Hugann seiða svalli frá
bls.62
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Hugann seiða svalli frá
sundin, heiði og skörðin
vonaleið er valin þá
vestur Breiðafjörðinn.
2.
Allt er borið burtu gróm
bæði af Skor og fjöllum
því að vorið blóm við blóm
breiddi í sporum öllum.
3.
Dægurhalli dagperlum
dreifir vallargróðann
bjargastalla beltast um
blessuð fjallamóðan.
4.
Þrjóti grið á þessum stað
þá er lið að skeiðum
því að hlið er opið að
úthafsmiðum breiðum.