Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Ó, Danny boyFyrsta ljóðlína:Er stjörnublik á bláum himni loga
Höfundur:Þorsteinn Matthíasson
Heimild:Munnleg heimild. Viðm.ártal:≈ 0
1. Er stjörnublik á bláum himni logaog bjarma slær um fjallsins ljósa traf. Hvikul alda leikur létt um voga ljómar sólin björt við norðurhaf. Þegar vindar hlýtt við björkum blaka og bæra vorsins mjúka hörpustreng. Hve ljúft í muna minningarnar vaka um margt sem áður gladdi sveitadreng. 2. Er ljúfur þeyrinn leikur blítt að greinumog léttar bárur kyssa bjartan sand. Á sumarkvöldi segir fátt af einum er sárum fótum treður Norðurland. Daggartárin drjúpa af dökku lyngi draumsins bjarma er vafin byggðin öll. Nú svífur væran svefn að Húnaþingi en sólarglóðin roðar Strandafjöll. Athugagreinar
Saga af ljóðasmíð - frá Jóni Þorsteinssyni, syni höfundar:
Hér er svo eitt af ljóðunum hans og ég man hvar og hvenær það varð til: Þannig var að við nokkrir krakkar vorum að æfa söngprógram fyrir árshátíð skólans. Hængur Þorsteinsson, tannlæknir var að hjálpa okkur að radda lögin og hann vildi að við tækjum fyrir írska þjóðlagið " O, Danny boy " Við vorum sannarlega til í það en við vorum ekki sérlega sleip í enskunni og þótti aðgengilegra að fá íslenskan texta. Ég hitti pabba í löngu frímínútunum ( 15 mín ) inni á kennarastofu. Ég raulaði lagið fyrir hann og úr pennanum streymdu nánast viðstöðulaust þessi tvö erindi. Stefán á Kagaðarhóli fylgdist með og sagði eitthvað á þessa leið þegar pabbi rétti mér blaðið. "Þetta getur ekki verið, þetta er ekki hægt", - en textinn lá nú fyrir engu að síður og var frumfluttur á árshátíð skólans í gamla samkomuhúsinu. |