Birtan kringum þig | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Birtan kringum þig

Fyrsta ljóðlína:Dýrð á jörðu
bls.384
Viðm.ártal:≈ 0
Dýrð á jörð.
Í dag er frelsari fæddur

Fögnuður hans er í hafinu
ber af þér höggið
er holskeflan fellur
og hækkar landið
er stríðsbrimið ólgar
við ströndina.

Aldrei skal það flæða yfir.
Aldrei skal það brotna
inn í þinn söng.

Dýrð á jörð.
Í dag er frelsari fæddur.

Fögnuður hans er í landinu
lægir vetrarstorminn
og strýkur burt ísþokuna
af enginu.

Aldrei skal hún hrímga
þína hugsun.
Aldrei skal hún berast
inn í þinn söng.

Dýrð á jörð.
Í dag er frelsari fæddur.

Fögnuður hans er í hjartanu
hreinsar af auganu skýið
og skýrir ljós hugans.
Sjá heiðið er blátt
yfir vorinu.

Léttu geislanum sporið
láttu hann ganga
inn í þinn söng.