Vögguljóð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vögguljóð

Fyrsta ljóðlína:Ég held um smáa hendi, því gatan er hér grýtt
bls.330
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Ég held um smáa hendi, því gatan hér er grýtt
þá get ég líka fundið, hvort þér er nógu hlýtt.
Ég veit mér skylt að ráða og rata fyrir þig
- en raunar ert það þú, sem leiðir mig.
2.
Æ snertir þú við þyrni? - Hann fól hin fríða rós
og fögur tárin myrkva þitt skæra hvarmaljós.
Mér rennur það til hjarta og reyni að gleðja þig
- en raunar ert það þú sem huggar mig.
3.
Þú spyrð um svarta skýið, sem skyggir fyrir sól
og skrælnuð mösurblöðin, er fjúka um laut og hól.
Ég leitast við að ráða þær rúnir fyrir þig
en raunar ert það þú sem fræðir mig.
4.
Nú þreytast smáir fætur svo faðminn þér ég býð.
Ég fel þig ljúft að hjarta og stundin sú er blíð.
Þú andar hægt og rótt og þín rósemd grípur mig
- svo raunar ert það þú, sem hvílir mig.