Erfiljóð um Sigurjón á Urriðaá | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Erfiljóð um Sigurjón á Urriðaá

Fyrsta ljóðlína:Þú studdist við stjórnina hæfu
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1980
1.
Þú studdist við stjórnina hæfu
sem stendur sinn eilifa vörð
Þú treystir á guð þinn og gæfu
gróanda i mannlifi og jörð.
2.
Þú jörðina byggðir og bættir
með bjartsýni og karlmennskudug.
Fénaðar glaður þú gættir
með göfugum liknarhug.
3.
Æskuna ljúflega leiddir
við leiki og þjóðnýt störf.
Alla til samhugar seyddir
sinntir hvers einstakri þörf.
4.
Vinfastur alltaf varstu
virkur á gleðistund.
Þungbæru þrautirnar barstu
með þolgæði og hetjulund.
5.
Margt er enn í mannanna deilum
sem mengar hið jarðneska líf.
ég óska þér hamingju heilum
við heimkomu á göfugra svið.



Athugagreinar

Erfiljóðið er um Sigurjón Sigvaldason, mág Júlíusar, höfundar ljóðsins. Úr Ísl.þáttum Tímans: https://timarit.is/files/11970619