Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Ljóðabréf til lítillar stúlkuFyrsta ljóðlína:Gaman er að ganga á fund við gleði þína
Heimild:Ljóð dagsins. bls.274
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Gaman er að ganga á fund við gleði þína og láta hana á sálu sína sumarlangan daginn skína. 2. Þú ert aðeins ofurlítil yngismeyja - en þeir, sem tímann hjá þér heyja hugsa ekki til að deyja. 3. Það er líkt og ljósið streymi úr lófa fínum þegar þú hvítum höndum þínum hjúfrar upp að vanga mínum. 4. Og þá glingrið grípur þú úr gullastokknum björt og sæl í bláum sokkum bragar af þínum silkilokkum. 5. Þegar ég horfi í þessi augu þýð og fögur finnst mér eins og láð og lögur leysist upp í kvæði og sögur. 6. Upp á hól þú hleypur þar og hoppar niður: kringum þig er frelsi og friður fuglar blóm og lækjarniður. 7. Þar er allt, sem illska minnar aldar smáði allt, sem skáldsins andi dáði allt, sem móðurhjartað þráði. 8. Ríktu þar á rauðum kjól, mín rós og lilja þar til allar þjóðir vilja þína veröld sjá og skilja. |