Kenndu mér | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kenndu mér

Fyrsta ljóðlína:Lengi var ég lítil, snauð
bls.149
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Lengi var ég lítil, snauð
lagðist þungt í efa.
Loksins fann ég feikna auð
– fékk hann til að gefa.
2.
Sá ég og heyrði hinna nauð
hróp úr myrkri efa
hélt á krafti og kynja auð
kunni ekki að gefa.
3.
Áköf löngun í mér brann
annarra hungur sefa.
Kyntu, guð minn, kærleikann
kenndu mér að gefa.