Ég kom þar | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ég kom þar

Fyrsta ljóðlína:Ég kom þar sem höfundar lásu ljóð sín í höllum
bls.80
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Ég kom þar sem höfundar lásu ljóð sín í höllum
við lófaklapp fólksins og hrifningu (vonandi sanna)
á fremstu bekkjum sat úrvalslið merkustu manna
og marmaralíkneskjur þjóðskálda hátt uppi á stöllum.
2.
En ég kveð á tungu sem kennd er til frostéls og fanna
af fáum skilin, lítils metin af öllum;
ef stef mín fá borist um óraveg háværra hranna
þá hverfa þau loks út í vindinn hjá nöktum fjöllum.
3.
Svo talaði vitið. En hjarta mitt hitnaði og brann.
Á herðum mínum ég dýrmætan þunga fann.
Ég átti mér, þrátt fyrir allt, mína purpurakápu.
4.
Í salkynnum þessum var engin þjóð nema ein
sem agaði mál sitt við stuðlanna þrískiptu grein
né efldist að bragstyrk við orðkynngi heiðinnar drápu.