Boð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Boð

Fyrsta ljóðlína:Ég á við þig erindi
bls.62
Viðm.ártal:≈ 0
Ég á við þig erindi
eins og þig kann að gruna

Umhverfis þig glóa
gervitungl og rafeldar
kaldir blossarnir
kvikna og slokkna
víxlaðir kynjaspeglar
varpa að þér beittum glömpum
glæringameistarar ausa þig
iðandi geislaregni.
En ég skal verða samlitur
sumarsins grasi og laufi
uns þú kemur auga á mig
þegar önd þín liggur við.

Hvað heyrðist þér við dagsetur?
Hvað dreymdi þig í nótt?

Þúsund bumbur
eru barðar við hlið þér
galdranornir beina að þér
gjallandi hljóðfærum
málmkynjaðir seiðtónar
setjast að eyrum þínum
hinir öskurglöðu söngvarar
ávarpa þig í sífellu.
En ég skal tala lægra
æ lægra
uns þú leggur við hlustir
uns þú nemur boð mín
líkt og næturþyt í axi.

Ég á við þig erindi
eins og þig kann að gruna:
Þér heyrðist það við dagsetur
þig dreymdi það í nótt.