Vindurinn | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vindurinn

Fyrsta ljóðlína:Vindurinn sem veltir sér
Höfundur:Emma Hansen
bls.III 85
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Vindurinn sem veltir sér
um völl og tinda hvar sem er
út á sjónum öldur ber
Oft hann veldur skaða
með ógnar orkuhraða.
2.
Vindurinn er vinur minn
þótt verði hann ekki handleikinn
kankvís bæði og kotroskinn
kveður mér við eyra.
Viltu vita meira?



Athugagreinar

Sent Guðrún Láru í ljóðabréfi