Sigling | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sigling

Fyrsta ljóðlína:Ég sigli um hafið með segl við hún
bls.40
Viðm.ártal:≈ 0
1.

Ég sigli um hafið með segl við hún
þeir segja það marri í borðum
og kjölurinn Heljar- ristir -rún
og reiðinn sé genginn úr skorðum.
2.
Ég stefni þangað sem stafninn snýr
og stansa ekki neitt til að venda.
Ég skessuna þekki, er á skerinu býr
þar sem skipið ætlar að lenda.
3.

Ég stýri glaður um Svartasjó
þótt sjái ég mannlausa báta
því skipið er nýtt en skerið hró
og skal því undan láta.