Týnd | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Týnd

Fyrsta ljóðlína:Hún gengur ein, svo ótrúlega ein
bls.2016 bls. 78
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Hún gengur ein, svo ótrúlega ein
ómeðvitað tekur næsta skrefið.
Hún gerir aldrei nokkrum manni mein
en muldrar kannski aftur sama skrefið.
2.
Þessi kona átti auðugt líf
indæl börn og deildi góðum kjörum
og mann sem reyndi að vera henni hlíf
í heimi, sem var skyndilega á förum.
3.
Og biturleikinn breytti hennar lund
í byrjun vildi enginn þessu trúa.
Hún gleymdi meira og meira stað og stund
og stöðugt erfiðara við að búa.
4.
Nú er hún bara skuggi af sjálfri sér
segir fátt en hvað um hugann fer
enginn veit, nú getur aðeins eitt
allur söngur henni gleði veitt.