Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Hvert liggur þessi vegurFyrsta ljóðlína:Hvert liggur þessi vegur
Höfundur:Ólafur Jóhann Sigurðsson
Heimild:Stuðlaberg. bls.1. tbl. 2022
Viðm.ártal:≈ 0
1. Hvert liggur þessi vegursem þið leggið handa vélum um löndin þver og endilöng um öræfi sem byggð? Hvar er kirkja huldufólksins? Hvar er klettur smárra dverga? Hvar er lækurinn hjá bænum? Hvar er lindin silfurskyggð. 2. Hvert liggur þessi vegursem þið leggið handa vélum? Hvar er mýrarbýli jaðraka? Hvar er mjaðarjurt og sef? Hví heyrist ekki lengur í hrossagauk og spóa? Hví stökkva engin köll út um stelksins rauða nef. 3. Hvert liggur þessi vegursem þið leggið handa vélum? Hvar er þögnin? Hvar er kyrrðin sem þér kenndi að dreyma og þrá? Hvar er lágvær þytur bjarka? Hvar er blómkyljunnar vísa? Hvar er löðurhvíti fossinn sem þú lærðir söng þinn hjá? 4. Í gráu malarrykivið gnatan stáls og hjóla að kvikubúum lífs þíns hefur komið einhver styggð. Hvert liggur þessi vegur sem þið leggið handa vélum um löndin þver og endilöng um öræfi sem byggð? Athugagreinar
Ljóðið kom út í bókinni Að brunnum 1974
|