Mælt eftir Þórönnu Þorsteinsdóttur f.1794 - hluti | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Mælt eftir Þórönnu Þorsteinsdóttur f.1794 - hluti

Fyrsta ljóðlína:Mér er þín móðurtryggð
bls.156
Viðm.ártal:≈ 0
...
1.
Mér er þín móðurtryggð
minnisstæð fram í hel
sem var á bjargi byggð
bölskúra þoldi él
vafði mig ástarörmum
þitt eðallundað elskuþel.
2.
Elskaðir æ minn hag
orði og verki með
margan því mæðudag
mýkti þitt trúfast geð
hús mitt að heillum studdi
umgengni þín og athæfið.
3.
Þitt ráðvant líf á láð
leiddist fram blessun með
þín stöðug dyggð og dáð
dró að sér þjóðargeð
góðkvendis hjartað hýra
skreytti lífsrósum banabeð.
4.
Fyrirsjón fríðri með
farsældust kjörin hlý
blessaðist brauð og féð
bjargsælum höndum í.
Bænar á himni heiðum
rann þér hvern morgunn náð guðs ný.
5.
Guðsótta geymdir best
gegnum öll lífsins kjör
trúlyndið mattir mest
meðan til entist fjör
með ráðvandri hönd og hjarta
vandaðir öll þín verk og svör.
6.
Elskaðir allra gagn
aumstaddra mýktir þraut,
kærleikans keyrðir vagn
kristindóms eftir braut
áfelldum forsvar veittir
viðkvæmt hjarta á vörum flaut.