Blíðviðri | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Blíðviðri

Fyrsta ljóðlína:Nú er ei gjöfin naum hjá þér
bls.53
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Nú er ei gjöfin naum hjá þér
náttúran unaðsríka
hauður í geislum hjúpað er
himinn og sjórinn líka.
2.
Stéttamun þú metur ei neins
en miðlar lífsins brauðum
börnum þínum öllum eins
auðkýfing og snauðum.
3.
Ljós og rúm er lífsins borg
með litaskrauti sínu.
Ekkert húm og engin sorg
er í skauti þínu.
4.
Sé ég fagran fjallahring
faðmlög sólar hljóta.
Með öllu, er andar, sjálf ég syng
sælt er að lifa og njóta.
5.
En hugurinn fleiri óskir á
engir væng hans bundu
að dreyma um meiri dýrð og fá
að deyja á sólskins stundu.