Gamla bréfið | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Gamla bréfið

Fyrsta ljóðlína:Lifi ég aftur liðna tíð
bls.14
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Máist letur, bliknar blað
bifast margt úr skorðum
en þetta kann ég utanað
oft ég las það forðum.
2.
Sjá það varla sjónir manns
sérhver stafur máður
sem að blessuð höndin hans
hefur skrifað áður.
3.
Lifi ég aftur liðna tíð
er lít ég rithönd þína
þá í svipinn sólin blíð
sálu vermir mína.
4.
Hér eru ástarorðin þín
í annarri hverri línu
enn þau hvísla inn til mín
yl frá hjarta þínu.
5.
Vekur bæði bros og tár
blik af hverri minning.
Þetta lýsir öll mín ár
frá okkar fyrstu kynning.