Öll él birtir | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Öll él birtir

Fyrsta ljóðlína:Öll ég birta upp um síðir
Heimild:Handrit IHJ.
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Öll ég birtir upp um síðir
aftur gerast betri tíðir
nú er vor um víðan geim
Blómin vakna bæi kringum
bjart er yfir Húnvetningum
sem við gerum sækja heim.
2.
Þennan fund við þráðum lengi
þegar vetur hörkustrengi
ákaft sló og kældi kinn.
Teigar hyljast, tóku klaka
tvisvar snerum við til baka
en þetta tókst í þriðja sinn.
3.
Nú mun ríkja sól í sinni
sælt er að eiga vinakynni
það er okkur öllum tamt.
Þau fjöll sem okkur útsýn banna
eru veggur milli granna
hindrun en má sigra samt.
4.
Veitinganna við höfum notið
vinahuga sannan hlotið
það við viljum þakka klökk.
Glaðlegt spjall og glettnar ræður
gleðja systur jafnt og bræður.
Hafið fyrir heila þökk.
5.
Þess við óskum að hér megi
áfram sem á þessum degi
búa fólk með dáð og dyggð.
Hann sem ræður himnaranni
og hamingju hjá hverjum manni
haldi vörð um Húnabyggð.




Athugagreinar

Jói í Stapa, Sigmundur nágranni hans og vinur á Vindheimum o.fl. voru gestir hjá systur Sigm., sem bjó með manni sínum á Blönduósi og Jói flutti þar ljóðið. Þetta var síðasta þriðjudag í vetri 1981.