Myndvarp atómsól - brot | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Myndvarp atómsól - brot

Fyrsta ljóðlína:Ég kom þar á veg
bls.142
Viðm.ártal:≈ 0
3.
Ég kom þar á veg
sem kenning var dregin
af hinu og þessu
um hjálpræðisveginn.

Þar bölvaði með
einn bolakálfur:
Guð hjálpar þeim
sem hjálpar sér sjálfur.

En lítil býfluga
leiðrétti það:
Guð hjálpar þeim
sem hjálpast að.

8.
Ég kom þar á veg
sem öll kynstrin af flugum
tróðust í skotum
og skriðu í smugum

á hertum þorskhausi
hver um aðra þvera
allt ein hvínandi kös
eins og sælust má vera

þar sem velferðarhugsjón
er lýðum ljós.
- Ball að Félagsveri
í Fiskikjós.

11.
Ég kom þar á veg
sem kjökrandi og frá sér
eitt skáldmenni reytti
skeggið á sér. -

Æ, víst hangir snilld manns
í veikum þræði
- hún veltur á tvípunkti
í þessu kvæði.

Og dögum saman
hef ég sveist við það blóðinu -
en ég sé hvergi stað
fyrir tvípunkt í ljóðinu.

13.
Ég kom þar á veg
sem vesöl móðir
hlúði kornbarni
við kaldar hlóðir. -

Æ, auðugi herra
sjáið aumur á mér.
Ég er helmingur mannkyns
hinn eruð þér.

Ég gegndi og hvataði
göngunni´ um stíginn:
- Ég er önnum kafinn
að kortleggja skýin.